Sæl.
Þar sem ég er að fara til útlanda nk. mánudag þá munum við taka smá pásu á tískufrík vikunnar í 2 vikur eða svo. Sem sagt, sú sem er tískufrík vikunnar núna er svo heppin að fá að vera það þangað til ég kem aftur heim! :) Ég gæti alveg haldið þessu gangandi þó ég komi ekki nálægt þessu en þar sem að ég er með þetta allt í einkaskilaboðunum mínum og með mitt eigið system á þessu þá finnst mér best að taka smá pásu. Það breytir ekki miklu. ;)
Ég geri ekki ráð fyrir að komast mikið í tölvu þar sem ég verð stödd, kannski bara rétt til þess að samþykkja efni ef eitthvað er, svo látið ykkur ekki bregða ef að þið þurfið að bíða í nokkra daga til þess að fá greinar o.fl. í gegn. Sendið bara allt sem þið viljið/þurfið að senda inn fyrir sunnudaginn og þá eruð þið í góðum málum. Eftir það verður allt hérna á áhugamálinu í smá slow motion a.m.k. og vona ég að þið sýnið smá tillitssemi því þetta verður ekki í langan tíma.
Ykkar einlæga Jessalyn.