Uppáhaldsföt :D Hérna ætla ég að segja ykkur hver uppáhalds fötin mín eru og afhverju!
Þetta er ekki í neinni sérstakri röð!

Svarta rúllukragapeysan (keypt í Frakklandi):
Ég á svona svarta bómullar-rúllukragapeysu sem að er einlit en í efninu eru svona rendur niður. Þetta er bara svo hlý og flott peysa. Einstaklega flott með þröngum gallabuxum :D.

Fermingar-toppurinn minn (keyptur í mótor):
Nota hann nú bara hversdagslega líka! Þetta er hvítur toppur með þykkum hlýrum úr svona þunnu “sundbola” efni, og það er hægt að vera í allskonar bolum undir honum t.d. með kross baki og þannig :)

Levi's gallabuxurnar:
Þetta eru svona dæmigerðar víðar Levi's buxur eins og voða margir eiga, þetta eru bara yndislegar buxur mjög þægilega og flottar :D(y)

Svarta pilsið (keypt í EIK):
Þetta er svart pils úr svona teygjuefni ég kemst í spíkat í því og svona :D! Það er svona tjásulegt að neðan og með teygju í mittið og bara kemur rosalega vel út + það er þægilegt :D.

Gráa rennda peysan (keypt í Zöru):
Hana fékk ég nú bara á 1.990 kr. í Zöru um daginn :D, þetta grá rennd peysa með engri hettu og ég baraa OFnota hana ;D

Levi's bolirnir:
Ég á tvo appelsínugula Levi's boli sem eru báðir mjög þægilegir og flottir :D en ætla bara að lýsa einum ;D
Hann er appelsínugulur með svona “loðnum” stöfum LEVIS. Þessi bolur kemur mjög vel út þegar að ég er í honum og gengur við allt :D.

Þægilegu fötin:
Mjög skrýtið en þægilegustu föt sem ég á, eru líka ljótustu föt sem ég á :-O, Þetta eru svartar “apaskinns” buxur með hjarta úr semelíusteinum á teygjunni og bolur sem er grá,brún,græn röndóttur einhvernveginn og er úr einhverskonar teygjuefni, og svo gerir hann mann óskaplega skrýtinn í laginu.

Já þetta var brot af því besta :D

(myndin: Þessi bolur er líkur mínum levi's bol)