Sko… ég er eiginlega á báðum áttum, því það eru bæði til flottir choccoar og fáránlegir choccoar. Ég held að málið snúist í rauninni um það hvort þeir eru alvöru choccoar eða eru að reyna að vera það. Tökum dæmi: Mér finnst flott þegar strákar eru alltaf snyrtilegir til fara. Í stutterma skyrtum og vel straujuðum buxum í skólanum , jafnvel með skjalatösku í staðinn fyrir þessa bakpoka sem allir eru með. Það eru alvöru Choccoar að mínu mati. Síðan eru aftur þeir sem halda að þeir séu geðveikt kúl og ofgera því. Eins og um daginn, þá hitti ég stelpu sem ég þekki með einhverjum vini sínum. Hann var svo brúnn að það var ógeðslegt, mjög massaður og í GULUM ÞRÖNGUM bol sem ætlaði að fara að rifna utan af honum og einhverjum þröngum buxum sem flestir eru að tala um hérna! Þetta var ÓGEÐSLEGT!!! Það lá við að ég ældi. Hann var alltof mikið að reyna að vera eitthvað, en hinir sem ég nefndi áður vilja bara vera fínir, og það er flott. Ég yrði ekki einu sinni á hina aumingjana. Og ég skiiiil ekki stelpur sem finnst
þeir flottir.