það eru svona 3-5 lög In the zone með britney sem hun gerði
Skrýtið að 9 lög séu allt í einu orðin 3-5 lög. En Britney hefur skrifað allt í allt u.þ.b. 1/3 af þessum 4 plötum sem hún hefur gefið út. Þar sem hún var ekki að semja fyrir fyrstu tvær plöturnar (fyrir utan 1-2 lög). En hún hefur samið meirihlutann af seinustu 2 plötunum og hefur ákveðið að semja alein fimmtu plötuna, þar sem hún hefur meiri tíma til þess að semja næstu árin á meðan hún er ekki að vinna.
ekki reyna segja að Britney hafi aldrei farið í sílikon
Jú jú veistu ég ætla bara víst að reyna að segja það. Leiðinlegt að 99% mannkyns átti sig ekki á þessu, en Christina hefur sílikonbrjóst á meðan Britney hefur þau ekki. Fjölmiðlar eru búnir að heilaþvo fólk til þess að halda að það sé öfugt.
veistu ég mundi aldrei vilja vera eins og hún, ég vel Christinu frekar.
Þú hefur allavega persónuleikann í hana. En Christina er þekkt fyrir að vera með mikla stjörnustæla og fyrir að vera algjör tík við aðdáendur og annað frægt fólk, á meðan Britney er þekkt fyrir að vera mjög yndæl og jarðbundin manneskja. Þú getur spurt næstum því hvaða Hollywood stjörnu sem er sem að hefur hitt þær báðar, og þær yrðu sammála þessu.
Ég öfunda christinu en ekki Britney, og christina hefur ekki anorexíu, ef þú vissir EITTHVAÐ um anorexíu þá ættiru að vita að fólk með þetta fitnar bara ekki eins og þau vilja eða grennast, þetta er veiki og þau haldast grönn, hún er bara mjög horuð
Ég hef lesið um anorexíu og á vini sem að eru að glíma við þennan sjúkdóm, allir þessir vinir mínir eru sammála um að það sé mjög líklegt að Christina sé með þennan sjúkdóm líka. Þegar hún er búin að bæta á sig þessum okkrum kílóum sem þú talar um þá er fiturprósentan hennar alveg örugglega en þá ekki langt yfir 10%, eða flokkast en þá sem vannæring. Britney er með bæði meira af vöðvum og fitu, og lýtur mikið betur út vegna þess.
Ég skal reyndar taka til baka að Christina sé eitthvað ljót, hún er ekki ljót heldur bara of mjó. Eina sem ég var að reyna að segja var að benda á það augljósa að Britney sé fallegri, ég man ekki eftir því að hafa séð Christinu í topp 5 lista yfir fallegar frægar konur, nokkrum sinnum séð hana í topp 10. Á meðan Britney er í 90% tilfella í topp 3 listanum.
og þó svo christina sé með sílikon, þá er hún samt með náttúrulega fegurð fyrir því
Er þá ekki hægt að segja það sama um Britney ef að hún hefur sílikon eins og þú segir ?
En Britney hafði allavega smá brjóst áður en þau stækkuðu, Christina var alveg flatbrjósta. Ekki heldur þú að hún kæmist á lista yfir fallegar konur ef að hún væri alveg FLATBRJÓSTA eins og hún var fyrir aðgerðina ?
þetta umræðuefni til byrjunar var engan veginn um britney, þú blandaðir henni inn í, þó svo þú sért fan og allt það, þá þarftu ekki að blanda henni inn í þar sem hún kemur málefninu engan veginn við,
Ég nefndi hana stutt sem DÆMI um fallega konu, Britney Spears er frægasta ímyndin í dag um fegurð kvenna. Hvernig er EKKI hægt að nefna hana þá í umræðu um það ?
Ég vildi aldrei að það yrði talað um tónlistina hennar, hvernig hún væri listamður og fleira. Enda var það EKKI ég sem að byrjaði á því.
hun hefði getað bara sleppt því að segjast vera hrein mey, eða ekki hrein mey
Gerir þú aldrei mistök ? Núna ertu einu ári yngri en Britney var þegar hún sagði þetta. Hefðir þú aldrei gert mistök í augum fjölmiðla 17 ára ef það hefði verið tekið viðtal við þig daglega og elt þig með myndavélum ?
Og já, fólk er þá ekki að hneykslast svona upp að christinu utaf hun segir satt og rétt frá
Hvernig veistu það ? Ertu búin að setja hana í lygapróf ? :)
britney er alltaf að koma með hneyksli
Hvað var Christina að gera þegar hún kyssti Madonnu ? hmmmm
Hvað gerir Christina þegar hún klæðist minni fötum en Britney hefur gert ?
en þetta er ekki þess virði að reyna ræða við þig,
Nei það getur verið leiðinlegt að vera í umræðu þegar maður veit innst inni að maður hefur rangt fyrir sér :)