Ég á ekki til orð!!! Ég var í Hagkaup í Smáranum um daginn, var einhver rosa útsala á fötum, ég var ekkert að skoða þetta beinlínis en ég sá einhverja konu taka upp barna bol, á ca 5-6 ára og á honum stóð Porn Star!!! Konan tók hann upp, skoðaði og brosti og muldraði eithvað að hann væri sætur! Hvað er í gangi!? Er sætt að sjá ungbörn í minipildum í bolum þar sem stendur Porn Star!? Er það eðlilegt!? Ég hef meira að segja séð bol þar sem stendur Porn Star in Training! en ekki tekið eftir því í Hagkaup. Þessi andskotans klámæðing er að gera mig geðveika, ekki nóg með að stelpur í dag klæðast einsog Pamela Anderson heldur eru börnin látin vera þannig líka! Litla frænka mín, sem er 7 ára, var að máta strand föt sem ég keypti á hana fyrir tveimur árum og þau eru vitanlega of lítil, svona strandpils og toppur, pilsið rétt nær niður fyrir rasskinnar, ég sá ekkert að því að hún var að leika sér með gömul föt, þangað til að hún stilti sig fyrir framan spegilinn og fór að káfa á hárinu og dilla sér einsog Christina Aguelera! Þetta er stelpa sem elst upp á femínisku heimili.
Stelpurnar sem eru með mér í skóla eru í fötum með play boy kanínunni á flestum flíkum, ganga í beltum þar sem segir “sex” “I wanna fuck” eða eithvað álíka. Ég er ekki á móti kynþokka og nekt en ég er á móti öfgum og þetta er meira en öfgar! Þessi klámvæðing virðist aldrei ætla að taka enda, það er cool að vera hórulegur. ojj
Það var grein í Fréttablaðinu um daginn, strákur sem sagðist ekki getað horft á popp myndbönd í dag og dæmt tónlistina, tónlist er orðið aukaatriði, ef gellan er nógu hóruleg og drusluleg með stórann rass er hún orðin súperstjarna, röddin er aukaatriði, þessi strákur sagðist þurfa að snúa sér við til að getað fallið dóma útfrá tónlistarmyndböndum þar sem hann dytti í trans í hvert sinn, dáleiðist af öllum rössunum. Ef strákarnir kvarta er virkilega eithvað að!
Ég ætlaði einusinni að fá mér nokia síma hulstur með play boy kanínunni aftan á, bara sem húmor, en svo sá ég allar þessar wannabe kanínur í kringum mig og hætti við, ég fann annað hulstur sem passar fyrir húmorinn minn, Betty Boop í rauðum Marlin Manroe kjól að halda honum niðri ;D minn húmor og skemmtilega kinky.