til þess að geta fundið á sig tískuföt.
Ég hef tekið eftir því að föt í dag henta ekki hverjum sem er.
Ég persónulega er talin vera grönn af vinum og kunningjum, samt get ég ekki gengið inn í venjulega tískuvöru verslun og fundið mér föt. Sniðin á þessum fötum í dag eru fáránleg, maður verður að vera algerlega rass, mjaðma og læra laus til þess að geta fundið sér ágæt föt. Mér finnst þetta ekki nógu gott mál. Fyrirmyndir sem notaðar eru í að búa til þessi föt eru líka mjög óraunverulegar. Það eru ekki svo margar konur sem eru vaxnar eins og Claudia Schiffer og Jen Aniston og lengi mætti telja.
Ungar stúlkur í dag eru flestar ekki ánægðar með sjálfa sig og líkama sinn, en er það nema von þegar fyrirmyndirnar eru svona óraunverulegar. Ég verð bara að segja fyrir mitt leiti að mér finnst þetta ekki nógu gott.