Glugginn
Ég sit og gægist oft út um gluggann
að gamni mínu út yfir skuggann
því fólk á förnum vegi,
fótgangandi að nótt og degi,
er alveg tilvalið að sjá.
Ég sé oft heilar skáldsögur skapast
og skrýtið fólk sem hér um bil tapast
í amstri og umferð dagsins,
eirðarlaust til sólarlagsins.
Það röltir strætin til og frá.
Stúlkur og stælgæjar,
standandi upp við bar
og sitthvað fleira má þar sjá.
Laglegir unglingar,
góðlegir gamlingjar,
og fólk sem horfir bara á.
Nei ég þarf ekki að sitja við sjónvarp
né sjá í bíói einhvern stríðsgarp
því út um gluggann gægist,
gerir ekkert þótt þú hlægir
því þar er ávallt margt að sjá.
Stúlkur og stælgæjar,
standandi upp við bar
og sitthvað fleira má þar sjá.
Laglegir unglingar,
góðlegir gamlingjar,
og fólk sem horfir bara á.
Ég sit og gægist oft út um gluggann
að gamni mínu út yfir skuggann,
því fólk á förnum vegi,
fótgangandi að nótt og degi,
er alveg tilvalið að sjá.

Skoðanir Octavo eru hans eigin og gætu því stangast á við skoðanir annarra á Huga. Þér er velkomið að:

Vera sammála honum

Vera ósammála honum

Láta sem þú sjáir hann ekki

Fara í fýlu</li
Skoðanir Octavo eru hans eigin og gætu því stangast á við skoðanir annarra á Huga. Þér er velkomið að: