Er enginn annar en ég sem er með ADSL?

Núna eru mjög margir hugarar farnir að hafa stórar myndir í undirskriftunum sínum, þetta væri í lagi ef þær væru á íslenskum serverum en nær allar eru á erlendum.

Flestir eru með einhverjar myndir úr prófum

'I am Snuggi, the lovably alien creature' ‘I am a forrest’ ‘I am a table’ ‘I am a total idiot’

Sumar þessar myndir eru allt að 40 kb og sumir hafa nokkrar í undirskriftunum sínum. Hugi er nógu hægfara fyrir, hann þarf ekki allan þennan auka þunga. Tala nú ekki um að þessar myndir eru fljótt að safnast saman og þurfa þeir sem eru með adsl þá að fara að borga internetþjónustinni sinni aukalega, bara til að fá að skoða korkaranna!

Burt með erlendar myndir úr undirskriftum!<br><br><div style=“border:1px solid black;background-color:white;padding:4px;”>kv. sbs | <a href="http://www.sbs.is“><font color=”#000000“>www.sbs.is</font></a> | <a href=”mailto:sbs@sbs.is“><font color=”#000000">sbs@sbs.is</font></a></div