What happened kiddos?
Okeiokei, geri mér grein fyrir því að fólk hefur vælt yfir þessu oft áður... en saaaaamt.
Hver er game í að lífga huga upp? pls
Ólíklegt.
Ég sendi inn grein fyrir ekki svo löngu síðan sem fjallaði um það sama, mér sýnist að enginn hafi samþykkt hana svo ég reyni örugglega bara aftur seinna...Eða skrifa pistil í staðinn...
Allavegana! Ég held að við ættum öll að taka okkur á og senda reglulega inn efni sem okkur finnst frábært! Þessvegna bara einhverja mynd, flotta pælingu eða bara eitthvað sniðugt.
Mitt takmark er að senda a.m.k. vikulega inn efni. Þessvegna bara hvað sem er...En samt ekkert kjánalegt, gef sjálfri mér viku til að finna nýtt efni :P
Og ég hef líka tekið eftir þvi að margir skoða efni sem sent er inn en svo kommentar enginn... Ég get allaf fundið eitthvað að segja um hlutina, ég held að kommentin séu tiltölulega stór hluti af svona internetsamfélagi eins og huga, þó maður sé ekkert eitthvað að skrifa eitthvað rosalegt (eins og ég t.d. núna) þá finnst mér ekkert minna að senda inn eitt komment "hey ég er sammála þér!" eða álíka.