MS böggar mig!
Þið ættuð að kannast við tilfinninguna á laugardagsmorgni. Þessa sem maður fær þega opna skal mjólkurfernuna og hún opnast ekki. Þetta smáatriði sem fer svo innilega í taugarnar á mér er hægt að æaga auðveldlega. Málið er ekki einfaldara en það að hér á stór-höfuðborgarsvæðinu ætti að taka upp sömu fernur og fyrirfinnast úti á landi. Þessar löngu og mjóu. Eða bara nota gler- eða plastflöskur sem má endurnýta. Hér með vil ég biðja hvern þann sem getur að láta MS vita að þetta er þvílíkt bull sem má auðveldlega forðast með mesta einfaldleika veraldar.