Þeor sem eru ekki búnir að sjá þetta þá mælinég með því að þeir lesi þetta! ;)
>Kæri nemandi
> >
> >Varst þú búinn að heyra af því að það á að stytta sumarfríið þitt um
> >þrjár vikur??? Ástæðan fyrir því er að foreldrar krakka í yngri
> >bekkjum nenna ekki að sjá um þau lengur og vilja halda þeim í
> >skólanum allt árið svo að þau geti unnið meira og fengið meiri
> >peninga. Við sem erum í eldri bekkjunum getum aleg séð um okkur sjálf
> >í fríunum en erum bara svo “óheppin” að vera þarna á milli. Líka það
> >að menntamálaráðherra vill að Ísland nái flestum öðrum löndum og
> >verði með sex vikna sumarfrí. Málið er bara að sumarið á Íslandi er
> >svo stutt að við þurfum ekki jafn mikið á haustfrí, vetrarfrí eða
> >öðru eins að halda eins og hin löndin. Sættir þú þig við það að
> >sumafríið þitt sé stytt um þrjár vikur því að þú ert “óheppin/n” og
> >menntamálaráðherra vill vera eins og önnur lönd? Ég sætti mig
> >allaveganna ekki við það. Á sumrin er hægt að fara niður í bæ,
> >skemmta sér með vinum sínum í sólinni og fara í ferðalög í góða
> >veðrinu… þetta er ekki hægt að gera í haustfríinu eða vetrarfrínu
> >án þess að vera úti í skítakulda í dúnúlpu og kuldaskóm.
> >Þess vegna höfum við hugsað okkur að mæta fyrir framan alþingishúsið
> >1.júní kl.17:00 og mótmæla þessu við menntamálaráðherra… við
> >viljum lengra sumarfrí… skrifaðu þetta hjá þér, mundu eftir þessu
> >því að þetta er ekkert grín, þegar þú ferð að hugsa útí þetta þá
> >muntu átta þig á því að það er brotið á rétti þínum!!!!
> >sendu þetta til allra sem þú þekkir í eldri bekkjum grunnskóla,
> >hvort sem þeir eru vinir þínir eða ekki, og segðu þeim sem eiga ekki
> >e-mail frá þessu. Við sættum okkur ekki við það að sumafríið sé
> >stytt svona mikið og sumarið þar með líka.
> >
> >fuck the system ;)
> >
> >takk fyrir…..
