Gott dæmi um einn stærsta ókost fulltrúalýðræðis, fulltrúarnir hafa sjálfstæðan vilja. Ef þeir gera eitthvað fáranlegt á þingi, þá getur þjóðin voða lítið gert, nema berja í tunnur fyrir framan þinghúsið eða gera petition á netinu. Ef einhver gerir meira en það þá er hann hryðjuverkamaður.
En ástæðan fyrir þessu er frekar augljós, auðvaldið í Bandaríkjunum er að komast að því hversu hættulegt internetið er fyrir þá. Í gegnum netið kemst þjóðin að því að nánast allar hernaðaríhlutanir BNA snúast bara um olíu og peninga og að bankarnir starfi örugglega alveg eins og fyrir hrun. Draumurinn þeirra væri að hafa Fox News sem einu sjónvarpsstöð landsins.