Ég er að leita af einu íslensku myndbandi sem ég sá inná youtube fyrir svona 3 árum. Það var tekið upp í einhverju partíi og var bara svona 20 sekúndur.
Mig minnir að það hafi heitið eitthvað “anna og kristín að rífast”. Það byrjaði á einhverri stelpu sem var að rífa sig, talandi um einhverja einræðisherra bla bla og hin stelpan var eitthvað að rífa sig á móti.
Síðan kom einhver virkilega blekaður gæji og sagði “heyrðu, vinkona þín… er bara eitthvað geðveikt áþví sko” með alveg FÁRÁNLEGRI rödd, það var fokking fyndið.
Kannast einhver við þetta?