Þú spyrð ekki um lítið. :)
Það eru þrír sem ég get endurhugsað ágætlega svo ef ég pæli í því núna 20 mín frá því ég byrjaði að skrifa, þá get ég bætt einum enn við en það er voða lítið.
2ár:
Fyrsta upplifun: Ég var einhverstaðar, ég man bara eftir að það var mikil sól og græn tún, og að þessi staður var óvenju fallegur, man ekki hvort það var fólk með mér en það er alveg möguleiki.
Ég man ekki af hverju ég fattaði að þetta væri lucid dream en ég man að ég ákvað að loka augunum og hugsa ‘ef þetta er draumur, þegar ég opna augun þá vil ég vera kominn í geðveikt flott dökkblá jakkaföt og með pípuhatt’, það virkaði.
Ég man ekki meira úr þessari upplifun nema ég held að þetta hafi endað á að ég hafi farið að fljúga, hef svo sterka tilfinningu fyrir því eitthvað og gleymt því að mér sé að dreyma. ;)
Önnur upplifun:
Var í samtali við góðan félaga minn, Birki H. og fattaði einhvernmeginn að mig væri að dreyma, það sem ég man þegar ég sagði við hann Birki “Hvernig er að vera bara ímyndun í hausnum á mér?”, hann tók því einhvernmeginn … rétt, eins og manneskja myndi gera það í alvörunni, var bara með glott, hálf vandræðalegur og vissi ekki alveg hvað hann átti að segja, svo man ég ekki meir.
Þriðja Upplifun:
Móment sem er mjög blurrað, man ekkert umhverfið nema þetta var svona “city-stíll”. Ég… einhvernmeginn … fór að trúa á að þetta væri draumur og vildi fljúga eða fara upp í loftið, ég byrjaði bara að lyftast eins og það var verið að draga mig upp og ég gat ekkert gert, ég var svo hræddur meðan ég var að fara upp að ég náði að láta mig opna augun bara og vakna í rúminu.
einn og hálfur mánuður
Fjórða upplifun:
Úff einhvernmeginn er þetta gleymt en þetta var mikill draumur með vinum og vandamönnum, held að þetta hafi verið þegar ég var sofandi fullur, ég hef tekið eftir að draumarnir eru meira intense þá.
Ég man ég leit í kringum mig, var einhverstaðar úti eftir að hafa verið búinn að beila á vini mínum svo hugsaði ég nei bíddu what ég kom heim af djamminu í gær og fór að sofa og ég fann ekki “root” yfir því hvernig dagurinn byrjaði, eins og momentið hafi byrjað einhverntíman skyndilega bara.
Ég horfði í kringum mig, þetta var allt of epískt og “óraunverulegt” til að vera satt, allt se var langt í burtu í kringum mig var bara dökkt, svart ég var samt skíthræddur líka út af því ég var svo meðvitaður þó að ég hafi upplifað þetta áður, þetta var í fyrsta skipti sem ég leit á fokkin fegurðinna og hversu merkilegt það er.
Það er slatta af fólki að gera hlut sem kallast Dild, ‘Dream Induced Lucid Dream’, það er eitthvað sem ég væri til í að fkn geta, að lucid dreyma er bara eitthvað sem sumir geta kveikt á hvenær sem er og slökkt á því aftur.
þú?