en ég persónulega myndi sætta mig við ef það væri tekið harðri hönd á þetta.
Harðari en hvað? Hvaða reynslu ertu eiginlega að miða við?
Eða hefuru verið að horfa á umræður um aðgerðir gegn hryðjuverkum í BNA og reyna að heimfæra það yfir á okkur?
Því persónulega vill ég þetta ekki hér
Enda eru ekki hryðjuverk hérna. Besta forvörnin gegn hryðjuverkum er að fokkast ekki í öðrum. Því ættum við ekki að vera í Nató eða að styðja stríð annarra einhvers staðar í heimi. Ef við erum ekki að fokkast í einhverjum arabamúslimum þá hafa þeir litla ástæðu til þess að fokkast í okkur að fyrra bragði. Það er eitthvað sem BNA og Ísraelsmenn klikkuðu á.
Ef hópur Íslendinga í Danmörku myndu taka uppá því að sprengja hús og drepa breytta sem óbreytta borgara á götum Kaupmannahafnar myndi ég nú halda að besta lausnin væri að takmarka magn Íslendinga í landinu
Af hverju? Af hverju að dæma þá út frá þjóðerni en ekki trú? Af hverju ekki að dæma þá út frá hörundslit, kyni, kynhneigð eða hárlit?
Hvað með að dæma þá eftir því hvort þeir séu með freknur eða ekki?
Af hverju í andskotanum að henda manneskju út úr landinu bara vegna þess að hún fæddist í sama landi og önnur manneskja sem braut af sér? Ber ég ábyrgð á gjörðum annarra sem fæðast á sömu eyju og ég?
Bera menn ábyrgð á gjörðum annarra bara vegna þess að menn fæðast innan lína sem eru teiknaðar á landakorti og eru í raun og veru ekki til?
Því ef ég ber ekki ábyrgð á gjörðum annarra, þá sé ég enga ástæðu til þess að henda mér út úr landinu nema ég sé viðriðinn hina mennina, og þar sem ég þekki ekki alla Íslendinga og á ekki í samstarfi með öllum íslendingum þá ætti að þurfa að sýna fram á þau tengsl áður en mér væri hent út… eða finnst þér rétt að hunsa ‘saklaus uns sekt er sönnuð’ þegar þú fyllist ofsóknarbrjálæði?
Jú við búum í lýðræði og leggjum áherslur á frelsi fólks en í frelsinu megum við setja línur og hindranir
Þetta er svo mikið runk að ég skil ekkert hvað þú ert að segja. Við eigum að hafa skoðanir á því hvað fólk má gera við annað fólk. Ef við viljum ekki að fólk sé að drepa annað fólk þá skulum við taka á þeim vanda, ekki taka á þeim auk allra annarra sem voru svo óheppnir að fæðast innan 700 km radíus frá morðingjanum… það er út í hött og ótrúlegt að nokkur maður skuli halda því fram.