um daginn fór ég í sturtu og eftir hana var kallinn kominn í skjannahvítar boxer nærbuxur og labba alsæll inní herbergið og er þar ekki helvítis geitungur sem lendir síðan á mér og ég auðvitað tryllist og æði útúr herberginu og reyni síðan að fara inn en auðvitað þegar ég er kominn inn byrjar geitungurinn að sveima svo ég dríf mig að ná í buxurnar.. og svo drap ég hann með séð og heyrt.
Var að fara í sokk áðan… leynist ekki djöfulsins geitungur sem stingur mig í löppina. Ég fattaði ekki að þetta var geitungur þannig ég tók hann í hendina og hvað gerist? Jújú, hann stingur mig í hendina, ég lýsi hérmeð yfir stríði á geitungaþjóðina.
já vá, þoli ekki þegar geitungar, bíflugur eða fiskiflugur hertaka herbergið mitt, því ég þori ekki að koma nálægt þessum helvítum..þá þarf maður alltaf að bíða þangað til einhver annar vill drepa þær fyrir mann xD
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..