Er eitthvað að þér?
Fólk eins og þú gerir ráð fyrir því að fólk séu einhverjar kindur og að þú sért manneskjan sem á að vernda þær.
Gefur ekki kannabis meiri vellíðunartilfinningu? Það gæti alveg verið ávanabindandi, eins og t.d. spilafíkn.
Rétt, kannabis er eins og kaffi og salt og Burger King máltíð ávanabindandi vegna þess að okkur líður vel við neysluna, en hver ert þú til að skipta þér af því að ég kaupi mér 8 borgara, salti þá, raði þeim í turn og kjamsi eins og morgundagurinn brenni fitunni af mér?
Ef kannabisefni gefa meiri vellíðunartilfinningu en sígarettur, og bæði væru lögleg efni… hvað myndi meðalmaður velja?
Ef meðalmaður fengi alvöru fræðslu um vímuefni og sígarettur í grunnskólum og væri gerður greinarmunur á hræðsluáróðurs'staðreyndum' og læknisfræðilegri tölfræði, hver í fjandanum ert þú til að segja meðalmanni hvað hann á að gera? Hvað kemur þér það við?
Ef kannabis er svona skaðlaust eins og margir segja, hvað myndi stoppa hann í að kaupa það?
Það skiptir engu máli hvort það er skaðlaust, og ef það er eins skaðlaust og sumir segja[weasel words much?] af hverju er það bannað í fyrsta lagi? Við vitum öll af hverju, við höfum öll heyrt þetta þúsund sinnum, vegna þess að bandarískir lögregluþjónar höfðu ekkert að gera snemma á 20. áratugnum.
Og “Hvað myndi stoppa hann”? Ekkert, rétt eins og í dag.