Veit ekkert hvað maður getur fengið fyrir þennann pening. En nei, þetta er ekki ásættanleg hegðun. Ef ég miða bara við mig og sambandið mitt þar sem við höfum alltaf verið trú hvort öðru þá væri þetta svo langt útfyrir mörkin að ég hugsa að við myndum skilja/hætta saman á endanum. Við eigum samt tvö börn en tilhugsunin um að hann myndi gera eitthvað svona, bara nei. Eins og einhver sagði þarna í þræðinum þá er þetta eiginlega verra en svona “venjulegt” framhjáhald því þarna ertu vísvitandi að borga fyrir ákv. þjónustu en allir geta orðir hrifnir og gert eitthvað “óvart”. Eins með ef gaur færi með einhverri gellu inní herbergi, hann sæti á stól og hún færi úr fötunum og hann fengi að koma við og eitthvað, þá yrðu flestar konur alveg brjál en af því að hann er kominn einhvert ákveðið og borgar fyrir þetta og það er strippari sem hefur þetta að atvinnu sem gerir þetta, þá allt í einu er það öðruvísi og fyrirgefanlegt.