Jæja, ég vissi nú ekki hvar ég átti að pósta þessu þannig að tilveran varð fyrir valinu..

Ég á/átti vinkonu sem að var besta vinkona mín í heiminum, trúnaðarvinkona mín sem að sagði mér allt sem að var að og ekki að og öfugt. Síðan fyrir svona mánuði þá hætti hún að tala við mig og ég varð frekar sár en reyndi svona að leiða þetta hjá mér þar sem að ég er alls ekki góð í að tjá mig í svona málum.

Svo um daginn átti kærastinn hennar afmæli (sem að btw. ég var eitthvað að dúlla mér með á síðasta ári) og hann ætlaði að bjóða mér vegna þess að við erum bara vinir núna.
En neinei bannaði hún honum ekki bara að bjóða mér og spurði hvort að honum finndist ég í ALVÖRU skemmtileg og þegar hann sagði já þá fóru hún og önnur ‘vinkona’ mín í þvílíkt kerfi og voru að spurja hann geðveikt útí þetta þangað til að hann ákvað að hætta við að bjóða mér.
Góð vinkona ég veit, og málið er að ég heyrði þetta frá kærastanum og hún hefur ekkert talað við mig í geðveikt langann tíma og ég veit ekkert hvað ég get gert vegna þess að það lítur þannig út að henni sé alveg skítsama.

Ojæja, varð bara að koma þessu frá mér, engin skítköst takk fyrir.
If you can make a girl laugh, you can make her do anything