Þetta er alveg rétt hjá þér held ég. En ég er í einhverju góðu skapi núna og mér dettur í hug að kannski eru margar réttar pælingar bakvið þetta og þín pæling, sem er alls ekkert slæm, er bara ein af þessum pælingum. Ein hliðin á teningnum ef svo mætti orða það.
Ég er sammála þér með þetta, ég trúi ekki að það sé bara EIN manneskja þarna úti, eins og í Lovestar kannski. Ef það væri bara ein þá ætti nú að vera hægt að reikna út hver það væri. En ég kaupi það ekki, það hlýtur að vera svona eins og þú segir, sumir passa betur saman en aðrir.
En ef einhverjar tvær manneskjur passa voða vel saman, svo kemur einhver sem passar betur með öðrum aðilanum. Ég held að ef það myndi gerast þá væri þetta hreinlega ekki gott samband til að byrja með. Í góðu sambandi, alvöru ást, þá er enginn annar betri en þessi sem maður er með. Það er bara svo fuck erfitt að halda því þannig.