Ég trúi að af maður gerir eitthvað slæmt muni það koma í bakið á manni :-P
Ég held samt ekki að örlögin séu óbreytanleg og fastmótuð, það væri líka fúlt því hver væri þá tilgangurinn með þessu öllu saman?
Mig dreymir oft eitthvað sem ég skil ekkert í og fatta sjaldan merkinguna fyrr en eftir á, þegar eitthvað gerist sem tengist drauminum.
Það er samt ekki sniðugt að segja neinum frá því svona eftir á. . . þá heldur fólk annað hvort að ég sé að ljúga, sé rosalega athyglissjúk eða hreinlega geðveik!