Án þess að hafa kynnt mér íraksstríðið og allt það rugl verð ég eiginlega að benda á nokkra hluti:
Ástæðan fyrir því að hermenn koma flestir úr fátækrahverfum í Bandaríkjunum er að því að þeir hafa kannski ekkert annað val. Annað hvort herinn eða vera í algjöru skítastarfi eða atvinnulaus. Þar er það “barið” inn í hausinn á þeim að hlýða skipunum strax. Svo koma skipanir um að fara eitthvað og þeir fara þangað og gera það sem þeim er sagt að gera, óháð því hvað þeim finnst. Þetta er eiginlega bara heilaþvottur. Og ef fólk heldur að þú ráðir gerir það asnalegustu hluti ef þeim er sagt að gera þá (bendi Milgram Experiment
http://www.damninteresting.com/do-what-youre-told )
Vá, þetta kemur geðveikt út eins og að hermenn séu vélmenni eða eitthvað álíka :P ég veit að þetta er ekki alveg svona einfalt svo ekki taka þessu eins og þetta gerist nákvæmlega svona.
Mér þykir þó frekar slappt að hata/bera alls enga virðingu til hermanna, eins og þeir séu varla fólk. Og hættið að drulla alltaf yfir hermenn, haldiði að það sé ekki nógu andskoti erfitt að lifa við það að geta verið skotinn hvenær sem er? Og vita aldrei hvar eða hver óvinurinn er? Barn kemur upp að þér og þykist biðja um mat eða eitthvað og rekur síðan handsprengju í andlitið á þér! Ef ykkur ætlar að vera illa við hermenn, þegið yfir því en drullið yfir ríkistjórnir!
Og þegar þeir skjóta óvart óbreyttan borgara sem þeir héldu kannski að væri óvinur? Og svo koma þeir heim að jafna sig og þá drullar fólk yfir þá og hrækir á grafir þeirra! Þið þurfið ekkert að hrópa húrra fyrir þeim, bara ekki drulla yfir þá.
Og afhverju einblína allir á hermennina í Íraksstríðnu? Hvað um friðarsveitirnar víðsvegar um heiminn? Þetta eru líka hermenn? Eru þeir ekki fólk? Eiga þeir engrar virðingu skilið?
Ég vil líka benda á það að Soldat gaf ekki skít í alla á huga í þessum korki (amk man ekki eftir að hafa séð það) en honum er skítSAMA um flesta.
Og eitt að lokum ef einhver nennti að lesa svona langt, það að æfa eitthvað, vinna við eitthvað eða hvað sem er verður oft lífsstíll. Hann Soldat er með myndir af sér í hermannabúningi eða eitthvað, þessi búningur er hluti af hans lífstíl. Hversu margir í fótbolta eru með myndir af sér í fótboltagalla o.s.frv.?