Til að byrja með þá voru gyðingar hluti af þýsku þjóðinni og því er það ekki til hagsbóta fyrir þjóðina að níðast á þeim. Svo er það almennt samþykkt að það sem nasistaflokkurinn sagði um að gyðingar væru gráðugar afætur á þjóðfélaginu sem sugu í sig auðæfi og skildu heiðvirða þjóðverja fátæka eftir hafi verið vitleysa. Þar af leiðandi er það algjör sóun á tíma og peningum að ofsækja þá eins og gert var. Siðferðislegu rökin eru alveg augljós, það er slæm leið fyrir hverja þjóð að viðurkenna ofsóknir á hendur minnihlutahópa því það dregur niður siðferðismörkin og gerir allt ofbeldi viðurkenndara.
Þetta er allt svo augljóst að það ætti ekki að þurfa að útskýra þetta.