Þetta er bara ógeðslegt!
http://www.mileysavefuzzy.com/demise.html
Lét drepa köttinn sinn til þess að hún gæti étið hann, bara af því að Miley Cyrus hætti á Twitter. Og ef hún kæmi á Twitter aftur, myndi Fuzzy fá að lifa.
Bara oj.
Þú ert ekkert útí haga að leika þér með lömbunum í nokkur ár áður en þú slátrar þeim og borðar þau svo?
Nei, einmitt.
Þetta er ekkert ‘röng’ hugsun hjá mér.
Þegar að þú ert búin að tengjast einhverri lífveru tilfinningalegu bandi þá er það náttúrulega bara klikkun að fara sjálfviljugur til dýralæknis og ljúga svo að læknirinn drepi dýrið þitt sem þú elskaðir í nokkur ár eða þó bara í stuttann tíma. Síðan matreiðiru dýrið og innbyrðir það.
Það er ekkert eðlilegt við það!
Þú finnur ekki kattakjöt í kjötborðinu í hagkaup, eða þá hundakjöt, hamstrakjöt eða páfagaukskjöt.
Ertu að segja að það sé ekki eðlilegt að matreiða dýr og innbyrða það?Nei, en eg mæli sterklega með því að lesa yfir það sem ég sagði aftur. Annað hvort tala ég svona svakalega óskýrt eða þú skildir ekki það sem ég var að segja.