Ah fucking hell fólk sko. Gerið eitthvað sniðugt, glæðið kyndla og veifið í takt eða eitthvað. Allt á jákvæðan og uppörvandi hátt. Elskumst og eignumst börn randomly og ölum þau öll saman upp.

Og í miðjunni en ekki síst, segið mér eitthvað sniðugt. Eitthvað jákvætt. Eitthvað osum. Afþví að lífið ykkar er yndislegt, you know? Og ef það er það ekki þá fokkjú og farið á nöldurþráðinn að kommenta.

Annars ætla ég að koma því að að Jónas Árnason er osum, ég fæddist næstum því fjórtán ára og það er yndislegt að væta kverkarnar þegar þær eru að farast úr þurrheitum og almennum leiðindum.

Bætt við 20. nóvember 2009 - 00:24
Vá, þið eruð ömurleg. Er ekkert skemmtilegt að gerast hjá ykkur?

Sem dæmi má nefna að ég hló frá mér kvöldið í tjilli. Það var skemmtilegt. Kommon. Engin pressa en ég myrði ykkur kannski ef þið takið ekki þátt, en þó ekki nema þið séuð yfir þrjá metra á hæð.