Dummy í vinnunni
Rétt í þessu þá var ég að reykja útá svölum þegar ég sé svartan jeppling af gerðinni suzuki stoppa hjá kirkjunni..og útúr bílnum stekkur maður með myndatökuvél og hleypur að hurðinni og byrjar að recorda…2 sekúndur líða þangað til sveppmeister og villi naglbítur stökkva útúr bílnum og hlaupa inní kirkju og myndatökumaðurinn á eftir..2 mín líða þangað til þeir koma hlaupandi útúr kirkjunni og sveppi á naríunum með stórt bros á vör og spyr villa hvar robbi sé..“hann er rétt á eftir!!” þeas. ef ég heyrði rétt…svo bruna þeir burt á hyperspeed…þetta fannst mér frekar skondið