Pottþétt þegar ég var að sækja 6 ára systir mína á svona félagsmiðstöð fyrir viku þegar ég var á Íslandi og það var svona sæt ljóshærð stelpa að vinna með hana. Þá spurði ég bara upp á gamnið ‘'Hvað heitir þessi ljóshærða?’' Hún vissi það ekki. Þá spyr ég: ‘'Veistu þá hvað hún er gömul?’' Hún vissi það heldur ekki. Ég skutla henni bara heim og svo næsta dag er ég beðinn um að sækja hana aftur..
Ég geri það, ekkert mál.
Svo þegar ég kem og kalla á hana, þá labbar hún upp að þessari ljóshærðu og spyr: ‘'Hvað heitiru og hvað ertu gömul?’' Hún segist heita Anna og vera 25 ef ég man rétt. Þá fer systir mín til mín og ‘'hvíslar’' (meira öskrar) ‘'Hún er 25 ára og heitir Anna’'. Allar gellurnar fóru að sprenghlægja og ég bara: ‘'FUUUUUUU-’' Þurfti að standa eins og gúrka meðan hún klæddi sig í og fólkið að hlægja… Shit, ég fæ illt í punginn ennþá bara við að skrifa þetta.
Moderator @ /fjarmal & /romantik.