Hvern sem er sem getur fært mér munch og eitthvað í filterpappír heim til mín.
Annars finnst mér TheySeeMeTrollin, innerlight, Afhverju, Noproblem, Delirium (og ábyggilega fleiri) vera geðveikt svöl. Ég vil hitta þau öll í einu og bara tala saman og chilla. En svo eru notendur eins og smeppi, Damphir og vitringur sem ég væri alveg til í að eiga samtal við.
Í rauninni finnst mér samt jafn asnalegt að upphefja fólk út frá einhverju internetattitjúdi og að niðurlægja það út frá því, þó ég sé að gera það núna. En sumir hafa bara meiri áhrif á mann með skrifum sínum en aðrir og þessir notendur standa upp úr þar. Sumir þeirra virka sem svo laidback og mellow persónur og það finnst mér mjög kúl því þá eru þau örugglega á svipuðu leveli og ég. Aðrir virka meðvitaðir og einbeittir um ýmis málefni og fá mann til að virða þau alveg ósjálfrátt.
Bætt við 5. október 2009 - 03:16
Auðvitað langar mig líka til að hitta sætar stelpur… og aktíva róttæklinga með svipaðar skoðanir og ég. Einhverja til að rífa niður Babýlon með og koma af stað byltingu hjá fleirum. LIFI BYLTINGIN!