Lamb Guðs
29Daginn eftir sér hann Jesú koma til sín og segir: “Sjá, Guðs lamb, sem ber synd heimsins. 30Þar er sá er ég sagði um: ,Eftir mig kemur maður, sem var á undan mér, því hann er fyrri en ég.' 31Sjálfur þekkti ég hann ekki. En til þess kom ég og skíri með vatni, að hann opinberist Ísrael.”
32Og Jóhannes vitnaði: “Ég sá andann koma af himni ofan eins og dúfu, og hann nam staðar yfir honum. 33Sjálfur þekkti ég hann ekki, en sá er sendi mig að skíra með vatni, sagði mér: ,Sá sem þú sérð andann koma yfir og nema staðar á, hann er sá sem skírir með heilögum anda.' 34Þetta sá ég, og ég vitna, að hann er sonur Guðs.”
og þetta
Hæ ég heiti Geir og ég er frændi.