Já, eitt sinn fyrir langa löngu ræddi ég af mestu alvöru um múslima við some gaur. Hans view eru eitt það óskiljanlegasta sem ég hef heyrt og furða hvernig fólk getur réttlætt svona hugsunarhátt. Bara smánöldur yfir svona fólki þó þetta séu nú gamlar samræður, þær eru bara svo yfirdrifnar að þúveist…eitthvað. Samræðurnar eru annars svo:


Staithes - Þú veist að það er munur á einum múslima og þeim öllum?

Dúddinn: Tjah, fyrir mér eru þeir allir eins, eru á hnjánum 5 sinnum á dag og það segir mér þónokkuð um þá!

S: Segir meira um þig en þá.

D: Engan veginn, ef þú rökstyður ekki
Auk þess er verið að segja að við fáum bara eina mynd af þeim, og það er sú að þeir eru allir hryðjuverkamenn, vegna teikninganna. Hvaða mynd eru þeir að gefa af sér þegar þeir eru að rústa evrópskum sendiráðum um öll tuskuhausalöndin? Terrorisar? nei getur það verið? Svo má bæta því við að þeir eru auðvitað það “vitlausir” að þeir eru farnir að éta sig innann frá með því að fremja hryuðjuverk í sínum eigin löndum.
Svo má ekki koma með neitt á móti þeim því þá er maður titlaður rasisti. Ef þetta er rasismi, þá skal ég sko vera rasisti!

S: Þú dæmir alla múslima, það eru mistökin sem þú gerir. Auðvitað eru til múslimar sem eru hryðjuverkamenn, en að fordæma alla múslima eru mistök. Alhæfingar eru slæmar.

D: Það er samt sami boðskapur frá þeim öllum. Þeir trúa allir á það sama. Það telst ekki fréttnæmt ef kristinn maður sé trúleysingi, en það trúa allir múslimar á það sama. Sama herská ofsatrúin. Og það segir mannir margt um mistök hvers? Alhæfing slæmar? Ef mér finnst kartöflur vondar (til dæmis bara) þá finnst mér ALLAR kartöflur vondar, ekki satt?

S: Það er hreint út sagt silly að líkja múslimum við kartöflur. Taktu alla kristna menn sem dæmi. Eru ekki margir þeirra að fremja fjöldamorð? Múslimar eru ekkert verri en kristnir almennt, en í öllum trúarbrögðum eru skemmd epli.

D: Epli, kartöflur (jarðepli btw) Hver er munurinn? En nei í alvöru talað, það er ekki hægt að segja neitt á móti þessu hyski þarna niðurfrá án þess að það fari allir að taka upp hanskann fyrir þetta lið. Vá WAKE UP PEOPLE!!!

S: Auðvitað opnar fólk munninn gegn augljósum fordómum. Þú fordæmir alla múslima í staðinn fyrir að einbeita þér að þeim sem actually eru að gera svona.

D: Það eru nú helvíti margir að þessu, og ég get lofað þér því að 95% af þeim vita ekki hvar Danmörk er, svo hvaða rotnu epli ertu að tala um?

S: Rotnu eplin sem fremja hryðjuverk. Plús það að auðvitað voru þeir ekki beint reiðir yfir að vera sakaðir um hryðjuverk heldur að trúarleiðtogi (eða hvað sem rétta orðið er) þeirra hafi verið sakaður um hryðjuverk.

Ég efa að fleiri kristnir viti hvar Írak, Jórdanía og fleiri lönd eru en að múslimar viti um Danmörk, miðað við menntun.

D: Miðað við menntun? Jamm það lærir það að leggjast á hnén og væla 5 sinnum á dag og fara að það á að útrýma öllum nema múslimum. Í alvöru talað, þá stafar ógn af þessu fólki hér í heiminum. Ef það væri ekki olían, þá væru þeir ekki komnir svona langt. Olían er það eina sem við vesturlandabúar viljum af þeim.

S: Onei, fólkið lærir ekki að gera neitt nema leggjast á hnén og væla 5 sinnum á dag. Þú ert dæmi um afskaplega fordómafulla manneskju og ætla ég ekki að eyða meira púðri í að rífast við þig. Vonandi lendiru í því að standa í ævilangri þakkarskuld við múslima útaf e-u bráðlega. Hafðu það gott.

D: Ég vona svo sannarlega samt sem áður, að það muni ekki ske. Þeir vilja eflaust ekki neitt með mig hafa og ég vil alls ekki neitt með þá hafa. Já hafðu það gott sjálf/ur!