Jú, hann skilur einmitt eitthvað eftir sig, fólk veit hver hann var, við erum að ræða um hann einmitt núna, right? Það má vel deila um ágæti þess sem hann gerði - ég vil meina að hann hafi verið skemmtilegur karakter sem lífgaði upp tilveruna hjá helling af fólki og það sé definetly eitthvað. Ég er alveg sammála þér að 90% af því sem mér skilst að hafi komið út úr þessum manni hafi verið alveg kexruglað, en þrátt fyrir það sýndi hann ótrúlega dyggð og staðfestu við þennan málstað sinn og skeytti nákvæmlega engu um hvað fólki fannst eða sagði sem eru vægast sagt fáséðir eiginleikar í þessu samfélagi.
En já, mér er svosem skítsama hvað þér finnst um hann, en þú getur neitað því að hann hafi skilið eftir sitt mark á heiminum.
Bætt við 7. september 2009 - 15:42
Þetta svar var minna mean, mér fer fram.