Æ ekki segja svona ljótt :/
Helvítis myrkur og kuldi að halda aftur innreið sína og verða bara verri og verri. Svo allt þetta andskotans vesen, ritgerðir og verkefnaskil, tilheyrandi skrimt, morðfjár í skólabækur, strætó og mat. Allt of lág námlsán greidd eftir að önninni líkur og allt of háir vextir á láninu frá bankanum þangað til. Skólinn skallast á við vinnutímann, og samt getur maður sleppt hvorugu. Ég er einmitt að fara á fund við námsráðgjafa til að sjá hvort að hún getur reddað því. Og þetta er bara toppurinn á ísjakanum.
Ég hata stress, og skólinn og veturinn eru verkfæri þess.
Eins og skiltið sagði: Helvítis Fokking Fokk.
Atheists believe in the Goddess Athe, who is wise and powerful beyond measure. They are some of the most religious people in the world.