Annars finnst mér að það ætti að koma upp Straight Pride! Einhverjir memm? Og já, ég veit að ég er ekki sá fyrsti sem kemur upp með þessa hugmynd, en enginn hefur minnst á hana í þessum þræði.
Það hefur verið haldið straight pride. Það voru auglýsingar útum allt fyrir það einhvern tímann. Minnir að það hafi verið í fyrra.
En hvers vegna? Vegna þess að gagnkynhneigðir hafa verið kúgaðir svo ofboðslega lengi, og margir gagnkynhneigðir orðið fyrir einelti og persónulegum + líkamlegum árásum vegna kynhneigðar sinnar? Og það þarf fullt af fólki til að styðja baráttu gagnkynhneigðar til frelsis til að fá loksins að gefa blóð, gifta sig, ættleiða og skrá sig í sambúð?
Ég er ekkert á móti því, mér þætti það bara tilgangslaust. Gay Pride er til að fagna, ekki endilega til að hjálpa. Fagna því að samkynhneigðir séu aðeins minna kúgaðir og þannig nú til dags en áður.
Voru eitthvað fáir leðurhommar? Var að skoða myndir af þessu og sá ekki vanalega flotta risastóra leðurhommapallinn. Ég elskaði þennan pall. Alltaf besta tónlistin á honum.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..