Hver er ykkar versta martröð sem ykkur hefur dreymt um ?
Mig dreymdi einu sinni að stelpa sem ég þekki dó… og ég vaknaði grenjandi :O
Ég stend, og það er ljós rétt í kringum mig en myrkur allstaðar annarstaðar. Það skríða 2-3 kakkalakkar að mér, og ég stíg á þá. Þá skríða 7 kakkalakkar að mér, en ég næ að trampa þá alla í spað. Þá koma yfir 20 kakkalakkar að mér. Ég næ að drepa helling af þeim en nokkrir komast að mér og byrja að skríða upp eftir mér. Þegar þeir fyrstu sem komast að mér ná að skríða á mig, koma þúsundir, að mér, skríða upp eftir mér. þegar þeir eru að byrja að hylja mig byrja ég að öskra, og þeir byrja að skríða ofan í munninn á mér og niður hálsinn.
Og þegar ég vakna þá líður mér eins og það sé eitthvað að skríða allstaðar á mér…