Þetta er náttúrulega hálf brenglað koncept. Það veit enginn um fullkomið morð, nema sá sem hefur framið það.
Þú fréttir aldrei af neinum sem framdi hið fullkomna morð, því að um leið og það er komist upp um morðið, er það ekki lengur fullkomið, og þá ertu um leið búinn að skilja eftir mikið af vísbendingum.
Það eru samt margir sem hafa komist nálægt því að fremja “Fullkominn Morð”, en það hefur á endanum komist upp um þá. Það var t.d. maður sem vann sem hjúkrunarfræðingur á elliheimili í Bretlandi. Hann er talinn hafa drepið nálægt hundruðir manna með því að hafa gefið þeim overdose af morfíni, og svo þegar þau fundust dauð, gat hann haldið því fram að; ,,Já ég þekkti Jónu og ég er búinn að sjá um hana í langan tíma og hún er búinn að vera veik í langann tíma, þetta hefur bara verið náttúrulegt dauðsfall“ og það tók enginn hann í efa.
Það komst svo upp um hann, þegar hann það komst upp að hann hafði falsað erfðaskrá konu sem hann drap. Þá var farið að rannsaka hann frekar og þá komst upp um hann og ”fullkomnu morðin" hans.