Lestu bara bókina og þá geturðu verið alveg 100% á móti meginstraumnum.
Þá verðuru sérstakur einstaklingur, sem lætur ekki gabbast til að finnast vinsælir hlutir eftirsóttir, sem finnst pirrandi að mynd sé gerð eftir sama efni aftur og fær milljónir manna til að kynnast sögunni.
Þá muntu finna þinn stað, staður sem er að öllu leiti æðri en staður meðalmanna, sem flykkjast í straumnum, alsælir í þeirra fávisku og barnaskap.
Allt útaf því að þeim fannst góð mynd athyglisverð. Þvílík fífl að láta ginnast í að borga fyrir þennan stórkostlega söngleik, þvílíkir bjánar, kjánar, flón, heimskingjar, asnar, glópar, bjálfar og ratar, finnið ykkur ykkar eigin hug og hættið að finnast mínir hlutir skemmtilegir.
Bætt við 14. júlí 2009 - 13:58
Mynd sem skartar einum af besta og vinsælasta leikara sögunnar, í leikstjórn eins hugmyndaríkasta og nýjungagjarna leikstjóra um þessar mundir, með tónlist eins nýstárlegasta kvikmyndatónskálds í dag og fjármagn til að láta kraftaverk gerast. Er eitthvað að fólki, hvernig getur þeim fundist þessi mynd áhugaverðari en 40 ára gamla floppið?
Fólk er ekkert nema fábjánar.