Jæja, eins og flest allir vita er ég með frægari mönnum Íslands. En stundum gengur þetta of langt. Var í tíma í skólanum í dag þegar Papparazzi ljósmyndari ryðst inn til að taka myndir af mér. Honum er fljótt hent út. Síðan í Hádegishléinu Er ég bara að borða með vinum mínum, Þá sest einn náungi hliðin á mér og ætlar bara að taka viðtal við mig. Ég segi honum að drulla sér í burtu. Hann gerir það.
Hey, bíðiði aðeins dyrabjallan er að hringja.
(bið)
Nei, hvur andskotinn. Þetta voru 5 Papparazzi ljósmyndarar að taka myndir. Rétt náði að loka hurðinni á þá. Þetta er að ganga alltof langt. Þeir hanga hérna fyrir utan gluggan.
Jæja, þetta er komið nóg. Vildi bara lýsa svona venjulegum degi hjá stórstjörnunni Mér!!