Ég hef notað kannabis, amfetamín, crystal meth, kókaín, krakk, heróín, mdma, lsd, sveppi og heilan helling af allskonar læknadópi. Versti niðurtúrinn hefur verið eftir langa morfínneyslu. En það er ekki dagurinn eftir sem er verstur heldur hvernig þetta fer með líf manns, ég er búin að fara næstum því 20x á vog, 10-15 inná geðdeild, aldrei getað klárað neitt, bara verið fucked næstum því drepið mig oft, fékk hjartastopp, öndunarstopp, orðið fyrir bíl og farið í geðrof og fjölskylda mín í klessu. Allir héldu að ég væri bara farin þegar ég var rugluð í heilan mánuð og það kom bara orðasalat útúr mér. Þegar ég var unglingur var þetta bara samt bara frekar saklaust, var bara að prófa eins og þið