Ekki rafmagnsstól ástæða: Það getur kveiknað í fólkið, stundum þarf að senda rafmagnið aftur og aftur í gegn til að drepa einstaklinginn endanlega. Jafnvel þó einstaklingur lifi af rafstólinn ef hann bilar eða ef straumurinn var ekki nóg er aftakan endurtekin uns einstaklingurinn er dauður sbr Francis vs Resweber
http://en.wikipedia.org/wiki/Francis_v._ResweberEkki hengingu, Ástæða:
http://en.wikipedia.org/wiki/Death_erection vill ekki líta þannig út fyrir framan alla. en einnig ef þú brýtur ekki hálsinn í fallinu þá þarftu að dangla um á meðan þú kafnar. Hljómar ekki mjög vel.
Ekki Skotliði ástæða: hverjar eru líkurnar á því að byssukúlan sé bana skot. Fer náttúrlega eftir skotfærum, en það getur ekki verið áræðanleg aðferð við aftöku.
Reyndar í Bahrain er það ein skytta sem miðar og skýtur í hjartastað. Það gæti verið í lagi.
Ekki Gas ástæða: viðbrögð einstaklinga við gasi eru mjög ofbeldisfull og ógeðfelld (samkvæmt lýsingum) en þó er ekki hægt að sanna að sá sem verið er að taka af lífi sé í kvölum, en vill maður taka áhættuna.
Þar af leiðandi er aðeins banvæn sprauta eftir. Hún hefst á því að einstaklingurinn er svæfður og svo er honum gefin lyf sem valda vöðvalömum og stöðvar anddrátt. og að lokum er gefið lyf sem stöðvar hjartað. s.s minnst kvalarfulla aðferðin.