Ég ætlaði bara að njóta góðrar sígarettu hérna rétt áðan og steig út til þess. Labba ég þá ekki uppá lömb sem var að kafna í fótboltamarki og þurfti að bjarga þeim. Ég losaði það fyrra bara með höndunum og tók það smástund en náði bara ekki að losa hitt, eyddi ekki alltof miklum tíma í það því fljótlega datt mér í hug að hlaupa inn og ná í skæri og koma aftur út og klippa það burtu, sem ég gerði um leið og lambið var farið að eiga afar erfitt með að anda. Það líka datt bara niður og hreyfði sig ekki í svona 10 sekúndur þartil það spratt upp og hljóp á brott.
Svolítill bömmer þegar maður ætlar að njóta lífsins.