Ég talaði eithverntímann við Anarkista þarna frá Kalíforníu og hann hélt að það væri hægt að fá heimsfrið með því að hafa enga ríkisstjórn og láta alla fá byssur. Því að ef allir ættu byssur þá myndi ekki skapast valda ójafnvægi eins og er þegar einn er með byssu en ekki annar. Ég náði að rökræða hann svolldið í spað með því hvernig byssueign á Íslandi er háttað og hvernig ástandið var hérna á Víkingatímanum þegar það var engin ríkisstjórn.
Vona að eithverstaðar þarna úti sé sál sem ég hef breytt til hins betra.
Bætt við 14. maí 2009 - 19:04
Fyndið að það eru líka þarna gaurar að reyna að tala við stelpur… Eins og þetta sé staður til að pikka upp stelpur, þegar maður talar undir nafninu “random stranger”.
Lífið er aðeins vegur sem leiðir til dauða.