Hefurðu srsly ekki séð hana?
Á að gerast í víetnam stríðinu. Hún fjallar eiginlega um hermann sem er sendur að leita uppi og drepa einhvern hershöfðingja sem er eiginlega búinn að stinga af með hóp af mönnum og farinn að berjast öðruvísi en er yfirstjórn hersins þóknanlegt. Hugmyndir hershöfðingjans eru ágætlega kynntar í gegnum myndina, ásamt því sem maður fær ágæta mynd af ‘ástandinu’ í víetnam og hversu heimskulegt þetta var alltsaman og hversu fáránlegar aðstæður hermennirnir bjuggu við. Fljúga á einhverjum þyrlum og skjóta fullt af fólki, lenda síðan og fara bara að grilla og drekka bjór, einskonar strandarpartý. Myndin er eiginlega að deila svolítið á þessa aðferðafræði, að etja einhverjum guttum með byssur útí frumskóg og vera síðan bara með partý, semsagt að vera með hermenn sem eru ekki hermenn heldur bara krakkar með byssur.
Mæli með henni, hún er ekki í 35. sæti af 250 á imdb að ástæðulausu
http://www.imdb.com/title/tt0078788/“We train young men to drop fire on people. But their commanders won't allow them to write ”fuck“ on their airplanes because it's obscene! ”