Ef hann myndi sleppa því að hljóma svona bitur (btw ég heyrði þetta í útvarpinu í gær en ekki allt samt, er bara að tala um hvernig hann talar í fjölmiðlum almennt) þá myndi maður taka meira mark á honum. Margt sem hann er að segja og hefur sagt í gegnum tíðina er rétt en hann skítur sig í fótinn með því að ganga of langt og vera dónalegur, því það er það eina sem fólk sér og stimplar hann bara sem fávita. Ég vorkenni honum svolítið, hann er og hefur verið lengi lagður í einelti af íslenskum fjölmiðlum.