Ég hef heyrt ágætis hluti um hostelið í laugardalnum, það er sennilega það lang ódýrasta í Reykjavík. en hentar náttúrulega aðeins ef þú ætlar bara að eyða nóttinni þar og ert ekki með mikinn farangur. Nema þú fáir einkaherbergi, held þeir séu með nokkur en þau eru sjálfsögðu dýrari.
Annars geturðu líka alveg fundið ódýr hótel, það eru fullt af hótelum sem eru utan 101 og því ódýrari, jafnvel í Kópavogi eða Hafnarfirði. Hótel Cabin við Borgartún er nokkuð ódýrt. Skoðaðu bara heimasíðurnar.