Já, það er hass, mjög sterkt. Minnir mig á eina sögu sem systir mín og vinkona hennar sögðu mér.
Það var fyrir svona 3 árum sirka eitthvað þvílíkt mál þar sem ég bý að einhver gaur var að keyra út úr dópaður og keyrði á ljósastaur og slasaðist og eitthvað. Þær unnu at the time með einhverjum asnalegasta gaur sem ég hef heyrt um, hann var líka ógeð, spikfeitur og bólugrafinn og geðveikt asalegur og hann ætlaði að reyna að vera eitthvað og sagðist hafa verið með honum þegar hann ‘var að sprauta sig’ og eitthvað (vil taka fram að þær hafa báðar verið í semi neyslu, og þekkja svona alveg), samtalið var svona:
Asnalegi gaur: Já, sko, ég var með honum þegar hann var að sprauta sig sko.
Þær: Já, ok…
Asnalegi gaur: Já, vitið þið með hverju hann var að sprauta sig með? Svörtum afgana. *gerir einhvern voða svip*
Þær: Uuu…ha? Svartur afgangi er hass, sko.
Asnalegi gaur: Eh…hérna…eheheh…þetta var sko þriggja vikna skammtur. *gerir svipinn aftur*
Svo fór hann fram og þær bókstaflega örguðu af hlátri…