Þú ferð í þriðja borð í fysta heimi. Finnur ein hvítan kassa sem er í lausu lofti og það ætti að vera skjaldbaka að labba þar. Þú drepur hana bara, ýtir svo á “niður” takkann og heldur honum inni þangað til að Mario dettur niður og er eiginlega á bakvið bakgrunninn. Svo hleypur þú bara í rétta átt þangað til þú ert kominn útí enda (ekki samt klessa á vondu kallana) og þar ætti að vera hurð sem þú sérð ekki þannig þú ýtir bara á upp (eða niður ég man ekki alveg) til að komast inn um hurðina og þar ferðu inní herbergi þar sem kista er á gólfinu og ofan í kistunni er töfraflautan!
Bætt við 1. mars 2009 - 18:23
Já ég gleymdi að segja að Super Mario Bros 3 er besti leikur sem hefur nokkurn tímann verið gerður.
“All work and no play makes Jack a dull boy.”