Gaur ekki vera að tala um eithvað sem þú veist ekki rassgat um. Hann gerði fullt af góðum hlutum og menn segja að það séu bara 2 konungar sem virkilega hafa verið annt um þjóðina frá því að við fengum konunga fyrst og það eru Jörundur og Kristján X.
Jörundur var ekki eithver gaur sem var að ljúga sig upp á þetta skip heldur var hann túlkur á skipinu. Svo er ég tilbúin að draga orð þín í efa að hann hafi tekið yfir landið til að ganga í augun á eithverjum. Miklu frekar hefur hann bara verið að gera þetta í umboði við skipstjórann eða eithvað þvíumlíkt.
Svo frelsaði hann alla fangana sem sátu inni, einn m.a. fyrir að stela brauði þegar hann var glorsoltinn og ein kona fyrir að eignast barn fyrir hjónaband eftir nauðgun. Svo vildi svo til að þessi tvö hjú fundu ástina og fluttu til Borgarfjarðar eða eithverstaðar þar nálægt og voru virkilega dugleg og góð hjón, Jörundur gaf þeim meirað segja fiðlu.
En já, ég veit ekki með hvort að hann hafi verið sterkur eða ekki en allavega þá var hann höfðinu hærri en flestir og bar af öðrum mönnum…
Hvar lærðir þú sögu ef ég má spyrja?
Lífið er aðeins vegur sem leiðir til dauða.