Mér findist það frábært.
Ef maður væri eitthvað svakalega á móti þessu, þá hlýtur maður að hneigjast til þess að drýgja hór.
Persónulega myndi ég berja tíkina þangað til að ég gæti ekki lyft höndunum lengur.
Þess vegna. Ég ætti ekki að þurfa að útskýra þetta frekar, en mér leiðist, svo ég skal gera það.
i. Ég er svakalega á móti þessu, en ég hef aldrei haldið fram hjá og gæti aldrei fengið það af mér. Þetta er mesta trúnaðarbrot sem hægt er að fremja í sambandi, en ríkið hefur nákvæmlega engan rétt eða ástæðu til þess að skipta sér af þessu.
ii. Það er bara heimskulegt og ekkert annað að vera búinn að ákveða það að þú myndir lemja maka þinn (líklega til bana, miðað við eigin lýsingu) fyrir það að halda fram hjá þér. Það er aldrei réttlætanlegt að lemja eigin maka, sama hverjar aðstæðurnar eru (nema við séum að tala um eitthvað mega-absúrd Mr. & Mrs. Smith dæmi). Það finnst mér ekkert skárra en framhjáhald.
iii. Þú talar um að þú hefnir þín á kvenfólki öðruvísi en að slá það. Hefnd að yfirlögðu ráði er barnaleg og engan veginn eitthvað sem þroskaðir einstaklingar gera, sérstaklega þegar við erum að tala um maka og trúnaðarbrot af þeirra hálfu.