oooh hvað mig langar í brauð með skinku og osti en ég veit að það hefur ekkert upp á sig að borða á kvöldin og maður verður bara feitur af því. Svo gæti ég líka vakið mömmu sem vaknar alltaf þegar ég kveiki á örbylgjuofninum á kvöldin, þótt hann sé á annari hæð. En það væri samt svo gott að fá sér… oooh svo gæti ég fengið mér coke með, come on ég veit að coke fer illa með tennurnar og það á ekkert eftir að hjálpa mér að sofna en það er svoooo gott. Vá hvað mig langar ekkert meira en að fá mér brauð með reyktri skinku og osti og kóka að drekka núna. Já ég fæ mér þetta, en bara þetta eina kvöld út af því ég er hættur að taka í vörina og er eithvað down… Á morgun verð ég nýr maður og borða ekkert á kvöldin. Allavega ekki neitt óhollt ;D
Lífið er aðeins vegur sem leiðir til dauða.