þetta er örugglega meira svona væl og krenj og kvart hérna hjá mér, en ég var í endajaxlatöku og núna er þetta svo vont!!
Ég var sprautuð með helling af deyfilyfjum og fann ekkert fyrir neinu fyrst en núna grenja ég bara úr sársauka.
Ég var sko skorin upp og endajaxlarnir teknir þannig. Það var líka saumað fyrir.
Ég get ekki gert neitt!
Hausinn er að springa útaf þessu og það er vont að kyngja og ég er ekkert smá óþægilega bólgin.
AHH ég hata þetta.
Bætt við 20. nóvember 2008 - 18:54
já og núna er ég kassótt í framan! Ég horfi í spegil og bara váh er þetta ég?